Give me love, give me all that you have...

GRAZIE PREGO CIAO

14.11.2008 09:49:42 / solrun

Hmmm á maður einvhað að vera að blogga?

Já það er nú spurningin, á maður einhvað að vera að blogga.  Fluttur heim frá Ítalíu og góða veðrinu, já flutti sko beint i vosnku veðrið sem reið yfir allt í fyrra vetur:(  Hugsa að ég nenni bara alls ekki að blogga meir ;)

kveðja Sólrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 14:15:35 / solrun

Sól og sumar

Núna er sko aldeilis komið sumar hérna á Ítaliu sem er æði, fyrir utan allar pöddur.  En hérna i Milanó erum við með svona smá "gerviströnd" tekur um 20 min að fara þangað með strætó.  Fórum þangað um helgina nokkur saman og það var ekkert smá gaman, en ég brenndi mig samt þó svo að ég setti á mig vörn nr 15 svona 1000 sinnum:lol:  hehe en ég get allavegana sagt að ég sé ekki gegnsæ lengur. Svo var farið heim til min og við horfðum á Eurovision, en þar sem hópurinn skiptis i 3 isl, sviar og kanar ákvöðum við að halda með svium þar sem að við komust ekkert áfram. Þetta var nú ekkert nema pólitik þessi söngvakeppni og var bara hudleiðinleg, gafst nú bara fljótlega upp að horfa á austurevrópu keppa. En Georgia hvar er það ég bara spyr og er það i evrópu helt að það væri nú bara i asiu?

Allavegana frábær helgi að baki og prófvika framundan, Svo kemur Guðbjörg i heimsókn eftir 2 vikur og mamma eftir 3 vikur, og svo kem ég heim 3 júli og get ekki beðið.  Já fékk lika þessa fínu vinnu i sumar á arkitektarstofu svo að það verður mjög gaman að koma heim og mæta i vinnuna.

Jæja ætla að fara að læra.

over and out

ELIN til hamingju með afmælið i dag:haha::haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 01:04:50 / solrun

Ekkert merkilegt......

Ástæðan fyrir þvi að ég blogga ekki er einföld... það er ekkert að gerast nema lærdómur. Nema að ég fór að djamma um helgina flaug á hausinn og með stærsta og þá meina ég stærsta marblett sem ég hef séð 10 i ummál og er ekki þæginlegur að hafa rétt fyrir ofan rassinn, jú og hægri höndin er lika öll i marblettum og smá snúin8|;).. já þetta er bara ég.

Nema vorið er loksins komið :) og það er bara yndislegt búið að vera sól og blíða núna i nokkrar vikur, blómin byrjuð að springa út á trjánnum og pöddurnar því miður komnar á stjá lika.

Er að drukkna i lærdómi sem er nú ekkert nýtt, erfitt að einbeita sér i svona góðu veðri langar bara vera úti að hafa það gott.. sprikla um eins og beljurnar á vorin.

Ég fann Jóhönnu sænsku æskuvinkonu mina á netinu hafði samband við hana, hef ekki heyrt i henni i 10 ár væri gaman að halda sambandi við einhvern úr bernsku.

Já þetta er nú svona voða stutt einhvað og lag gott en þetta er það sem hefur verið að gerast hj´mér að undanförnu.

Ciao i bili Sólrún

og koma svo fólk gerið skoðunarkönnunina hvað haldiði eiginlega að ég verði gömul næst 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 12:10:08 / solrun

skúlptúr úr mat

Vantar smá hjálp...  ég þarf að gera skúlptúr, hús eða einhvað þríviddar listaverk úr mat. Eru einhver með góða hugmynd af einhverju sem ég get gert, var að hugsa um að gera bara pýramida úr skúffuköku þvi að þá er lika hægt að borða hann á eftir:lol: þarf að skila þessu á mánudaginn þannig að please ef þið lesið þetta núna endilega komið með hugmyndir

Sórlún 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 19:18:37 / solrun

Skíðaferð til Frakklands

Já gott fólk ég skellti mér til Mont Blanc sem er hæsta fjall Evrópu á SNJÓBRETTI ooomiiguud hvað ég er ekki góð á þvi og ég hled að ég kann betur við mig á skíðum:lol:. EEENN ég mun reyna einusinni enn.

Allavegana þá voru það 4 ísl 2 svíar og einn Kani sem lögðu í hann eldsnemma á föstudagsmorgninum upp í alpana. Eftir 3 tima vorum við komin að landamærum Frakklands og ítalíu þar sem við þurftum að biða eftir rútu sem myndi fara með okkur yfir landamærin og á áfangastað sem var Chamonix, alveg geggjaður bær, þetta var eins og að koma inn i littla sögu eða einhvað álika skrýtið. Þar sem allir eru nú fátækir námsmenn þá gistum við öll á eins stjörnu hóteli sem að sjálfsögðu sást strax hehe... Ég og Isabelle vorum aðeins frá hinum en ég held að fyrir vikið höfum við fengið skásta hótelið :lol: Herbergið var mjög fínt nema að það þurfti að skella klósetthurðinni utanfrá svo að hægtr væri að loka henni, klósettsetan var að alltaf að hrynja af og sturtuklefahurðin vildi fara i öfuga átt;);) Klas og Josh þurftu að gista saman í pínkulittlu rúmi fyrstu nóttina og það fyrir ofan einhvern alveg glataðann tecnó einhvað club:o og hinir ísl voru á öðru hóteli (hittum sem sagt enn fleiri isl sem voru þegar komnir 4 aðra) á þeirra herb var klósettin eins og littlir yfirbygðir klefar og það var gólfteppi á veggjunum :D mjög skondið

Fyrsta daginn fórum við á snjóbretti, vorum alveg 100% á þvi að fara loksins að reyna komast inn i þessa snjóbrettamenningu og vera cooool eeennn nei ekki Sólrún hún var ekki alveg nógu cool þvi að hún gat ekki híst sig á f*****g fætur:^) en þegar ég gerði það svo þá var nú mjög gaman, verð ég að viðurkenna. Þegar ég var loks búin að koma mér upp góðri tækni við að komast upp þá var hún aðsjálfsögðu ekki sú auðveldasta og ég sem sagt snéri alltaf baki i niður i brekkuna þannig að ég þurfti að byrja á þvi að reyna snúa mér við og var að basla við það einu sinni þannig að ég hrundi beint á magan nokkra metra og snéri upp á hnéð á mér;) ekkert alvarlegt samt. En reyndi smá aftur og gafst upp. Næsta dag var ekki alveg jafn gott veður og daginn áður það snjóaði og ég var með hausverk og sá ekkert i snjóinn fór á brettið reyndi að standa upp, meiddi mig smá í hnénu (ekkert alvarlegt) tók brjálæðiskast úti sjálfa mig, tók af mér brettið og labbaði niður ALLT helvitis fjallið. Tékkaði á skiðaleigunni fyrir neðan en það var of dýrt fór i fýlu og fór heim að sofa.:$:$ heheh var samt alveg geggjaðslega gaman... en ætla bara að fara á skíði héðan í frá. langar hvort sem er ekkert að vera cool:$:$

En vá hvað snjóbretti reynir á maður... finn fyrir vöðvum sem ég vissi ekki að voru til i likamanum minum, rassinn og hnén á mér eru blá og marin:D Núna er ég lika að fara að taka af mér vetrar spikið þvi að vorið er á næsta leyti það er strax orðið frekar hlýtt og helv.. pöddurnar eru komnar á stjá :cry::cry: hata skordýr blee.. Sandra og Þórhildur þið munið veðmálið sem við gerðum um jólin um 15 000 kallinn?? ég mun vinna ég finn það á mér:lol:

En já ætla að láta þetta blaður í mér duga i bili og reyna að fara læra einhvað að viti

Ciao Sólrún

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 00:25:45 / solrun

Komin aftur i bili

Þá er þessi törn búin, guuuuð hvað það er gott. Hélt að ég myndi ekki lifa af. Það er svooo ruglaðslega mikið að gera i skólanum að það liggur við að maður kafni i alvörunni.  Meira að gera núna og minni tími heldur en i fyrra, en miklu skemmtilegri viðfangsefni.  Að þessu sinni vourm við að hanna Kaffihús sem átti að vera meeting area/shop. Mjög spennandi verkefni, bara of litill tími.  Við Elín vorum saman i okkar en þar sem ég var ein síðstu vikuna þá náði ég ekki að klára verkefnið, þetta var virkilega verk fyrir 2. Það voru 2 aðrar stelpur sem lentu lika i þvi að verða einar á síðustu stundu og þ´r ná'u ekki heldur að klára það.

Ég og Josh nýi vinur minn :)  við eigum i samskiptarerfiðleikum sem eru mjög fyndnir. Hann talar með svo miklum ameriskum hreim plús að hann mumlar og ég heyr bara stundum svo illa, þannig að allt sem við segjum þurfum við alltaf að endurtaka tvisvar sinnum;);)

Ætlaði nú að fara út að skemmta mér á morgun þar sem þetta prófbíííííp er búið, en veit ekki alveg hvort það sé að fara að gerast þar sem ég er orðin lasin. Sofnaði klukkan 10 i kvöld og vaknaði aftur 2 og hálfum tima seinna aftur, og núna get ég ekki sofnað aftur. Alltaf gott að skrifa blogg þegar maður hefur ekkert annað að gera. En ég er nú samt að hugsa um að prófa aftur á mæta snemma í skólann á morgun.. ohh sem minnir mig á það einn tíminn minn er á ítölsku. Það er timi þar sem við situm og horfum á brot úr kvikmyndum og þurfum að taka eftir öllu i bakrunninum, siðasti timi vara sá fyrsti og ég var alveg búin i höfðinu þurfti að einbeita mér svooo mikið til að skilja, en ég skilidi alveg ótrúlega mikið:haha::haha:

Over and out

Sólrún 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 13:54:21 / solrun

Læri

Hef farið til lærdómshelvíti og kem ekki aftur úr því fyrr en á þriðjudag...

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 17:06:59 / solrun

Kominn nýr meðleigjandi

Já það er kominn nýr meðleigandi hjá okkur Ellu, hann er 22 ára heitir Josh og er frá Bandarikjonum. Virðist bara vera besta skinn greyið:lol:  Hann er semsagt að koma i skólann okkar sem skiptinemi og verður hér þangað til i júlí, hann er á öðru ári eins og við nema i iðnhönnun þannig að við ættum að vera i nokkrum timum saman.
Annars er allt fínt að frétta fyrir utan það að það er rugl mikið að gera i skólanum og mig hlakkar til þegar 6 feb er búinn þvi að þá erum við búnar með  þetta risatóra verkefni sem við erum að gera núna, við erum að hanna kaffihús sem er einskonar búð lika og þetta á að vera almenningsstaður eða public space and a merting area/coffee shop..
Og svo er ég vað fara i eitt próf á morgun enn það ekkert sér kvíður fyrir, bara teiknipróf en það er bara dáldið mikið að skila inn i þvi lika og þetta tekur allt sinn tima. þannig að ég ætla að fara að hlada áfram núna.

C u later  Sólrún



» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 16:09:23 / solrun

Herdís er að yfirgefa okkur :(

Já þetta er alveg sorgar ástand, hún Herdís er að fara aftur heim á klakann :cry:  og hennar verður sárt saknað.  Við Herdís vorum áðan að setja upp auglýsingu fyrir meðleiganda sem á að koma i staðinn fyrir hana, og viti menn ekki einusinni klukkutima seinna, fáum við simhringingu og það er eihver ítalskur strákur hmmm....  athyglisvert. Við bíðum spenntar eftir að hann komi. Við Elín erum nefnilega að vonast til að geta leigt einhverjum ítala svo að við getum fengið hjálp í ítöslskunni :D:D sem er ekki alveg okkar sterkasta hlið8|. Jamm á nú eiginlega að vera að læra fyrir próf i ljósatæknifræði en get ekki alveg einbeitt mér, svoooo erfitt að komast almennilega i gang eftir svona gott frí heima ;).
Það er sko alveg brjálað að gera i skólanum verkefni eftri verkefni og próf hvað eftir annað. En eftir að svona helsta törnin er búin i febrúar fer ég og hitti Pabba og Söndru skvís upp i Maddonnu Di Campiglio flottasta skíðasvæðið... hlakka ekkert smá til.
Jæja verð að hætta þessu hangsi, ætla að halda áfram að læra.:$:$ 
Ciao Sólrún

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 00:05:26 / solrun

komin aftur út


Tölvan er sem sagt komin i lag eftir smá ferðalag til íslands og svo aftur með DHL til Ítalíu, tók ítalska tollin bara um 3 vikur að leysa hana út og vildu láta mig borga 50.000kr isl fyrir það. Og það var bara út af þvi að mamma hafði tryggt tölvuna áður en hún sendi hana aftur út, eeen nei stupido italianos vildu að ég myndi borga, sem ég að sjálfsögðu gerði ekki.

Allavegana þá var ég i lokaprófi i dag og það gekk bara ágætilega, fékk svona 7 i loka einkunn fyrir allt .
Lenti i smá hremmingum i gær þegar ég var að fara heim, ég og Robbi áttum flug saman hingað út, allt er i fínu nema þegar við loksins getum farið að tékka okkur inn á london orðin hundleið á margra tima bið þá kemur i ljós að flugið mitt var daginn áður þannig að ég þurfti að kaupa mér annan rándýrann flugmiða, borga yfirvigt og biða aðra 4 langa tima,ÖMURLEGT    but hey life can be a bitch......

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 12:42:13 / solrun

:(

Tölvan min er biluð

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 18:02:10 / solrun

6 dagar

.Þá er þetta allt að byrja... skólinn meina ég.  Við fáum íbúðina næsta miðvikudag og ég get ekki beðið.  En núna erum við komnar með einn leiganda i viðbót svo að það verur við stelpurnar saman, ég Herdís og Elín. Því að Elín greyið er búin að lenda i þvíliku basli með íbúðir síðan að við komum hingað að hálfa væri nú nóg. Hún þarf allavegana að fara úr þessari íbúð sem hún er í núna i des, þannig að hún ætlar bara að flýtja inn til okkar, enda alveg nóg pláss, notum bara stofuna sem herbergi, sem er alveg fínt þvi að hún er með hurð sem hægt er að loka. og svo minnkar leigan um 22.000 á mánuði á kjaft þannig að það verður fínt. og svo eru þær báðar bara svo frábærar þannig að þetta verðu bara gaman.  Ég og Elín erum allavegana saman í einu hópverkefni  þannig að það verður fínt að þurfa ekki að labba á milli til að vinna í því.

Over and out... er farin að fá mér Sushi i kvöldmatinn...
ciao

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 09:31:52 / solrun

Í dag er ég að flytja

I dag er ég að flytja úr þessari íbúð minni veiiiiii...:haha::haha: er að flytja til hennar Elæinar i 2 vikur, þvi að þá fæ ég íbúðina mína. Það var strák sem vantaði stað til að búa á þannig að ég lét hann bara hafa herbergið mitt og sparaði mér mánaðarleigu með þvi plús að ég losna héðan, er komin með algjört ógeð að búa i kommónu, og held að Daniel sem ég bý mneð ætti bara að drífa sig i AA.
Allavegana er byrjuð i skólanum en er bara búin að fara i einn tima, en fjörið byrjar allt á morgun, og mig hlakkar bara til. Það var alveg rosalega gaman að hitta allar stelpurnar úr bekknum aftur og finn bara á mér að þetta á eftir að verða skemmtilegt ár.

Má ekki vera að þessu þarf að fara að flytja veii.....

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 13:43:24 / solrun

Florence og Verona

Fór i smá roadtrip um helgina, ég og Isabelle leigðum bíl i 2 daga og keyrðum smá um ítalíu, ekkert smá gaman að fara smá svona útúr borginni. Á fyrsta degi fórum við til Flórens, sem er ekkert smá falleg og það er svooo miklu meira um að vera þannig þ.e.a.s. mennigarlega séð heldur en hér i Mílanó sem er bara ekkert ítölsk miðað við hinar borgirnar. I Flórens er svo mikið um listir, götumarkaðir og miklu fleiri túristar heldur en hér, og svo liggur hún í Toscany sem er ekkert smááá falleg váá ekkert smá rómantískt umhverfi.:D:D Við náttla keyrðum þangað, og það að keyra i Mílanó er nú bara djók miðað við að keyra þar þvi sunnar sem maður kemur þvi verr verður umferðarreglurnar hehe.. þannig að ef maður hefur lært einhverjar umferðar reglur what so ever þá er bara að brjóta þær ALLAR og þá gengur fínt að keyra hehe.. svína og beygja fyrir aðra:lol::lol: jepp það verður gaman að fara keyra aftur heima.
En allavegana svo fórum við á seinni deginum keyrðum við upp að Garda vatni sem er rosalega fallegur staður og þangað ætlum við i sumar yfir helgi til að fara á ströndina og vera ekta túristar, minnir mann smá á túristastaðina sem maður fer til Spánar og annað, en við keyrðum aðeins meðfram vatninu og lentum inn i littlu þorpi sem var ótrúlega fallegt og mættum bónda á traktor með uppskeru fyrir vingerðina sína, þetta er það sem maður finnst gaman að sjá af Ítalíu, ekki stórborg með enga sál.  Svo keyrðum við til Verona sem að mínu mati er með fallegri borgum sem ég hef komið í, og þarna væri ég til i að búa, þetta er sem sagt borgin þar sem Rómeó og júlía gerðist:lol::lol: þannig að við fórum og skoðuðum húsið hennar Júliu.  Þarna er gamlar kirkjur útum allt og svo var þarna lika gamalt hringleikhús eins og er í Róm bara aðeins minna, ótrúlega fallegt. Og allt i kringum borgina sér maður fjöllin og það er risastór á sem rennur í gegnum alla borgina, feels like home:):) hér eru engin fjöll og engin vötn, Mílanó er flöt eins og Danmörk, en það er samt kostur því að þá getur maður hjólað út um allt, en jæjæ nú ætla ég að fara að glápa á Americas next top model seriu 7 
Bæ i bili Sólrún


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 22:26:15 / solrun

Ciao ragazza!

Þá er ég lent aftur hérna i hitann og er farin að leita mér að annari íbúð til að búa í.... booring. Það er bara alveg mjög fínt að vera komin aftur út, var farin að halda að mig langaði ekkert út aftur enda búin að hafa það svo fínt  heima hjá mömmu i 2 mánuði, enn það er ekki verra að vera kominn út i smá hlýindi, enda er hérna hið fullkomna veður 25 - 30 stiga hiti. Nema eitt blessuðu vinkonur minar eru komnar aftur til að sjúga úr mér allt blóð:(:( ekki svo gaman það nei.Á morgun er ég að fara að skoða tvær ibúðir og ég bara vona að þær séu fínar.. svo er allt íbúðarverð alveg búið að hækka um 10 þús kall um það bil. 3 herb ibúðir eru að fara á 150.000  - 250.000 á mánuði algjört rugl hvernig á maður að hafa efni á þvi með skít og kanel i námslán?? bara spyr?? Þannig að ég vona nú bara að maður finni einhvað sæmilegt og það i þessu hverfi, nema ekki við hundagarð, þoli ekki gelltandi hunda allann sólarhringinn og svo er ég lika bara skíthrædd við þá:S

jæja krúttin mín ætla að fara að lúlla, þarf að vakna snemma til að skoða íbúðir og fara að læra á fullu... teikna teikna teikna og teikna...:):) og guð minn góður læra ítölsku er að fara i lokapróf i þvi og ef ég næ ekki þá fæ ég ekki inngöngu inn á næsta ár soooo help me god, því að ég er lélegari en allt lélegt i ítölsku, en hann Fabio og Alessandro vinir minir sem eiga barinn á móti skólanum ætla að hjálpa mér, ætla bara að mæta á svæðið með bækurnar og byrja bara að læra fá mér kaffi eða bjór þá er ég alveg viss um að þetta komi allt saman hjá mér:haha::haha:

Ciao bello


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Þotliðið úr IH
Stjörnuspeki
Heimasíður